26. maí 2008
Hlekkur fer undir Eyjafjöllin
Hann Hlekkur frá Neðra-Seli er tveggja vetra stóðhestur undan gæðingamóðurinni Hlökk frá Hólum og Orra frá Þúfu. Hlökk er m.a. móðir 1v stóðhestsins Hryms frá Hofi, og gæðingshryssunnar Hrímu frá Hofi. Hlekkur er hágengur og reistur, var seint kastaður en er að taka mikinn kipp í vexti og þroska. Þetta er efnilegur foli sem verður gaman að sjá hvernig rætist úr. En áður en að svoleiðis hlutum kemur skemmtir hann sér með dömunum undir Eyjafjöllunum.
Til baka | Senda á vin
|
|