• Forsíða
  • Pistlar
  • Fréttir
  • Hestar til sölu
  • Reiðhestar
  • Keppnishestar
  • Ræktunarhross
  • Hrossarækt
  • Stóðhestar
  • Hryssur
  • Tryppi
  • Tamningar og þjálfun
  • Fortamningar / unghrossamat
  • Frumtamningar
  • Þjálfun
  • Myndasöfn
  • Kennsla
  • Verknám
  • Reiðkennsla
  • Hnakkar til sölu
  • Um okkur
  • Magnús Lárusson
  • Svanhildur Hall
  • Heimasæturnar
  • Verðskrá
  • Tamningar
  • Fóðrun
  • Kennsla
  • Hafa samband
  • Alfur_fra_selfossi
Íslenska Íslenska  English
Senda fyrirspurnPrentaStór leturstærð Eðlileg leturstærð Leita
Forsíða >>  Hestar til sölu

Hestar til sölu - Reiðhestar fjögurra vetra og eldri

Geldingarnir sem eru listaðir hér fyrir neðan eru til sölu.  Auk þessara hesta er möguleiki að fleiri úr okkar ræktun séu falir, og bendum við á linkinn hér til vinstri þar sem stendur ræktun.  Þar er hægt að skoða alla árganga síðan við hófum ræktun og skoða hvað er til.  Ef þú hefur áhuga á einhverju þá endilega sendu okkur tölvupóst og við verðum í sambandi.  Athugið að öll verð eru gefin upp fyrir utan VSK.

Geldingar
Hryssur
Stóðhestar
Stóðhestsefni
Ungfolar
Unghryssur

Fáni frá Bjarnarnesi

         

Fáni frá Bjarnarnesi, brúnn, IS2000149201

F:  Suðri frá Holtsmúla
FF:  Orri frá Þúfu  FM:  Skálm frá Köldukinn
M:  Ósk frá Eyindará
MF:  Sörli frá Sauðárkrkóki  MM:  Hremmsa frá Eyvindará

Frábær og traustur reiðhestur til sölu undan 1v hryssu og Íslandsmeistaranum Suðra frá Holtsmúla. Fáni er rúmlega meðalstór og öflugur og mjög traustur.  Hann er spakur og næst hvar sem er í haga og er frábær ferðahestur, sterkur og fylginn sér. Hann kann allar helstu fimiæfingar og er hlýðinn. Fet, brokk og stökk eru framúrskarandi að gæðum og töltið gott.  Gæti hentað vel í fjórgangskeppni fyrir ungling eða ungmenni.  Þessi hestur er svo traustur að hver sem er getur riðið honum, en þekkingu á gangskiptingum þarf  til að ríða honum því annars velur hann brokk.  Töltið er þó rúmt og gott og alveg hreint.

Verð:  750.000

 


Haukur frá Kjarnholtum

 

Haukur frá Kjarnholtum, jarpstjörnóttur, IS2005188406

F:  Borði frá Fellskoti
FF:  Hugi frá Hafsteinsstöðum  FM:  Sokkadís frá Bergstöðum
M:  Fluga frá Kjarnholtum
MF:  Kyndill frá Kjarnholtum  MM:  Hlust frá Torfastöðum

Haukur er fyrst og fremst töltgengur og afskaplega geðgóður foli sem er efni í frábæran reiðhest.  Hann er örlítið frumtaminn, vanur hnakk og beisli og hefur verið riðið örlítið inni í reiðskemmu en ekki utandyra ennþá, enda ungur að árum.  Haukur er tilvalið hestefni fyrir einhvern sem vill kaupa ungan og efnilegan fola og temja sjálfur reiðhestinn sinn.

Verð:  180.000                            SELDUR

 

 

 

© Úrvalshestar | Holtsmúli I  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM Svanhildur Hall: 659 2237 | GSM Magnús Lárusson: 659 2238 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is | English
Nýjar myndir
Röskva frá Guðnastöðum Yrsa frá Guðnastöðum
Lilja frá Holtsmúla Andri frá Neðra-Seli
Álfur frá Selfossi
Tamningar og þjálfun
Hnakkar til sölu