Boðið er upp á stigskipt verknám í hestamennsku þar sem lögð er áhersla á að nemandinn læri um hirðingu og fóðrun hrossa, umgengi við hross, tamningar og reiðmennsku. Í byrjun verknáms er gerður samningur um námsdvölina þar sem fram kemur fyrirkomulag og lengd verknámsins.
|
 Verknemarnir Natalía frá Danmörku, Anke frá Þýskalandi og Anna frá Svíþjóð á hryssunum sínum. |
Nemandinn fær, auk kennslu og þjálfunar, fullt fæði og húsnæði á staðnum. Jafnframt fær hann laun háð námsframvindu og vinnuframlagi þegar líður á námsdvölina. Nemandinn lætur í staðinn vinnu annars vegar við hestahaldið á staðnum og hins vegar við húshald og barnapössun.
|
 Edda Margrét, Angelica og Astrid |