• Forsíða
  • Pistlar
  • Fréttir
  • Hestar til sölu
  • Reiðhestar
  • Keppnishestar
  • Ræktunarhross
  • Hrossarækt
  • Stóðhestar
  • Hryssur
  • Tryppi
  • Tamningar og þjálfun
  • Fortamningar / unghrossamat
  • Frumtamningar
  • Þjálfun
  • Myndasöfn
  • Kennsla
  • Verknám
  • Reiðkennsla
  • Hnakkar til sölu
  • Um okkur
  • Magnús Lárusson
  • Svanhildur Hall
  • Heimasæturnar
  • Verðskrá
  • Tamningar
  • Fóðrun
  • Kennsla
  • Hafa samband
  • Alfur_fra_selfossi
Íslenska Íslenska  English
PrentaStór leturstærð Eðlileg leturstærð Leita
Forsíða >>  Hrossarækt  >>  Tryppi  >>  Árgangur 2006
Stærsti árgangurinn fram að þessu leit dagsins ljós og afar hagstætt hlutfall hest- og merfolalda. Af sautján folöldum komu ellefu hryssur og sex hestar. Mikil ánægja var ekki síst með folaldið undan henni Kríu gömlu 26 vetra gamalli, en þegar við komum heim af Landsmótinu stóð hún stolt með Stáladótturina sína brúnskjóttu við hliðið! Folöldin eru undan mörgum hestum, m.a. þrjú undan Stála frá Kjarri og Forseta frá Vorsabæ, tvö undan Orra frá Þúfu og eitt undan hverjum eftirtalinna: Aron frá Strandarhöfði, Þóroddi frá Þóroddsstöðum, Dalvari frá Auðsholtshjáleigu, Geisla frá Sælukoti, Sæ frá Bakkakoti, Gusti frá Hóli, Sveini-Hervari frá Þúfu, Þristi frá Feti og Grun frá Oddhóli.
 

Árgangur 2008
Árgangur 2007
Árgangur 2006
Árgangur 2005
Árgangur 2004
Árgangur 2003


Aþena frá Neðra-Seli
Aþena frá Neðra-Seli, brún IS2006281101
F: Grunur frá Oddhóli
FF: Kraflar Miðsitju  FM: Gola Brekkum
M: Assa frá Hólum
MF: Kolfinnur Kjarnholtum  MM: Kría Lækjamóti 1v

Ekki svíkur hún Assa okkur um merfolöldin. Aþena er fimmta hryssan af sex folöldum. Eins og hinar, er hún stór og glæsileg í útliti, háfætt og tíguleg. Hálsinn er hvelfdur, langur og þunnur á skásettum bógum. Hún sýndi allan gang fyrstu vikurnar en notar nú brokkið mest og ferðast um stórum skrefum með miklum fótaburði.

Ásdís frá Neðra-Seli
Ásdís frá Neðra-Seli, brún IS2006281118
F: Orri frá Þúfu
FF: Otur Sauðárkróki  FM: Dama Þúfu
M: Askja frá Þúfu 1v
MF: Kraflar Miðsitju  MM: Skeifa Þúfu

Ásdís er með glæsilegri folöldunum þetta árið. Hún er mjög háfætt og framfalleg, og hreyfir sig á tölti og svifmiklu brokki með miklum fótaburði og svifi.

Blæja frá Neðra-Seli
Blæja frá Neðra-Seli, brún IS2006281114
F: Aron frá Strandarhöfði
FF: Óður Brún  FM: Yrsa Skjálg
M: Blanda frá Hlemmiskeiði 1v 
MF: Glampi Kjarri  MM: Stjarna Bólstað

Fyrsta folald ársins var kærkomin hryssa undan Aroni og Blöndu. Blæja fer um á afar fótaburðarmiklu tölti, sýnir stundum skeið og stundum brokk. Það verður einhvern tímann gott að sitja á henni. Hún er fremur stór og langvaxin, spennandi unghryssa.

Brá frá Neðra-Seli
Brá frá Neðra-Seli, brúnskjótt IS2006281112
F: Þristur frá Feti
FF: Orri Þúfu  FM: Skák Feti
M: Bylgja frá Snjallsteinshöfða 1v 
MF: Kolskeggur Stærribæ  MM: Fluga Vindási

Eftir nokkra hesta og nokkrar brúnar hryssur kom loksins brúnskjótt hryssa undan honum Þristi. Brá er rýmisleg og sýnir allan gang stórum skrefum. Hún er reist og sterkleg, skemmtilega ákveðin í framgöngu og gæti orðið mjög skemmtileg alhliða hryssa.

Bríet frá Neðra-Seli
Bríet frá Neðra-Seli, moldótt IS2006281102
F: Forseti frá Vorsabæ
FF: Hrafn Holtsmúla  FM: Litla-Jörp Vorsabæ
M: Buska frá Oddgeirshólum
MF: Léttir Sauðárkróki  MM: Buska Hróarsholti 2

Það var mikil gleði þegar fréttirnar bárust að Buska hefði komið með moldótta hryssu. Við keyptum Busku sumpart til að ná þessu fram og það hefur tekist. Nú er bara að sjá hvað verður úr Bríeti þegar fram líða stundir, en hún er afar montin með sig, brokkar um mjög hágeng og skiptir stundum í tölt svona spari.

Gleði frá Neðra-Seli
Gleði frá Neðra-Seli, rauðtvístjörnótt glófext IS2006281106
F: Þóroddur frá Þóroddsstöðum
FF: Oddur Selfossi  FM: Hlökk frá Laugarvatni
M: Gletting frá Leirubakka 1v 
MF: Logi Skarði  MM: Vör frá Varmalæk

Það var mikil gleði þegar Gleði fæddist, en okkur langaði mikið að eignast hryssu undan Þóroddi. Gleði stendur undir væntingum ennþá, er gullfalleg, reist og háfætt, og hreyfir sig mest á tölti og brokki með mjög háum fótaburði.

Grímur frá Neðra-Seli
Grímur frá Neðra-Seli, bleikálóttur IS2006181115
F: Sær frá Bakkakoti
FF: Orri Þúfu  FM: Sæla Bakkakoti
M: Gríma frá Skíðbakka 3 1v
MF: Sörli Stykkishólmi  MM: Lísa Skíðbakka 3

Grímur er mjög stór og fótlangur hestur. Hann er skrefstór og fótaburðarmikill, og sýnir allan gang, þó mest brokk. Hann er yfirvegaður í geðslagi eins og mamman, nánast alveg spakur og skemmtilegur í umgengni.

Gyða frá Neðra-Seli
Gyða frá Neðra-Seli, rauðblesótt IS2006281111
F: Sveinn-Hervar frá Auðsholtshjáleigu
FF: Orri Þúfu  FM: Rák Þúfu
M: Gná frá Sólheimum 1v
MF: Keilir Miðsitju   MM: Hekla Hofsstaðaseli

Gyða er rúmlega meðalstór, sperrt hryssa sem fer um á tölti og brokki. Hún er léttstíg og ber sig vel með góðum fótaburði. Gyða varð því miður munaðarleysingi í lok september á folaldshaustinu sínu þegar móðir hennar fórst. En hún er dugleg að bjarga sér og braggast vel.

Hlekkur frá Neðra-Seli
Hlekkur frá Neðra-Seli, brúnn IS2006181100
F: Orri frá Þúfu
FF: Otur Sauðárkróki  FM: Dama Þúfu
M: Hlökk frá Hólum
MF: Feykir Hafssteinsstöðum  MM: Dama Hólum

Hlökk frá Hólum, sem m.a. er móðir Hryms frá Hofi, fengum við lánaða hjá henni Selmu Svavarsdóttur vinkonu okkar. Ætlunin var náttúrulega að ná sér í gráa ræktunarhryssu, en út úr þessu kom bara brúnn hestur! En við erum búin að fyrirgefa honum það, hann er svo sperrtur.

Hylling frá Neðra-Seli
Hylling frá Neðra-Seli, jörp IS2006281115
F: Geisli frá Sælukoti
FF: Gustur Grund  FM: Dafna Hólkoti
M: Helena frá Ketilsstöðum
MF: Þekkur Ketilsst.  MM: Snekkja Ketilsst.

Hylling er stór og fótlöng, efni í rúma alhliða hryssu. Helenu móður hennar áttum við í nokkur ár, keyptum hana af Jens Einarssyni, sem svo keypti hana aftur nokkrum árum seinna. Helena var rúm og efnileg hryssa, sem var sýnd ung í 7,80 en slasaðist og var aldrei hægt að temja meira.

Klara frá Neðra-Seli
Klara frá Neðra-Seli, brún IS2006281103
F: Forseti frá Vorsabæ
FF: Hrafn Holtsmúla  FM: Litla-Jörp Vorsabæ
M: Kráka frá Hólum 1v
MF: Orri Þúfu  MM: Kría Lækjamóti 1v

Klara er mikið draumafolald, nefnilega fyrsta merfolaldið (eftir 3 hesta í röð) undan uppáhalds hryssunni á bænum. Klara er afar sperrt og hlaupaglöð, sennilega klárhryssa og notar brokkið mest með miklum fótaburði. Hún er reist og háfætt folald sem vonir eru bundnar við.

Seiður frá Neðra-Seli
Seiður frá Neðra-Seli, grár (fæddur brúnn) IS2006181120
F: Gustur frá Hóli
FF: Gáski Hofsstöðum  FM: Abba Gili
M: Sverta frá Kjarri
MF: Stígandi Sauðárkróki  MM: Jónína Hala

Enn ein tilraunin til að fá hryssu undan Gusti frá Hóli gekk ekki upp. En þessi grái hestur gæti nú leynt á sér, hann er snöggur í hreyfingum og léttur í spori en útlitið svolítið Gustslegt. Móðir hans, Sverta, er ung hryssa í okkar eigu og er systir Stála frá Kjarri heimsmethafa í kynbótaeinkunn að móðurinni til. Sverta er ung og verður tamin veturinn 2007.

Sjóður frá Neðra-Seli
Sjóður frá Neðra-Seli, jarpvindóttur IS2006181111
F: Dalvar frá Auðsholtshjáleigu
FF: Keilir Miðsitju  FM: Gylling Hafnarfirði
M: Sunneva frá Miðsitju 1v
MF: Greipur Miðsitju  MM: Þota Tungufelli

Sjóður er sennilega smellurinn í ár. Hann er óvenju háfættur og léttbyggður með langan, grannan og hátt settan háls. Þetta montprik ferðast um á öllum gangi og fótaburðurinn er mikill. Jarpvindótti liturinn skemmir ekki fyrir, og sennilega sleppur hann við að hitta dýralækninn með töngina í bráð.

Styrkur frá Neðra-Seli
Styrkur frá Kjarri, móálóttur IS200618100
F: Stáli frá Kjarri
FF: Galsi Sauðárkróki  FM: Jónína Hala
M: Auðna frá Kjarri
MF: Orri Þúfu  MM: Nunna Bræðratungu

Við vorum svo heppin að fá Styrk úr ræktuninni hjá Helgu og Helga í Kjarri. Auðnu móður Styrks tömdum við á sínum tíma og er hún nú 1v ræktunarhryssa heima í Kjarri. Við fengum hins vegar að halda henni og út úr því kom móálóttur hestur, sem töltir og brokkar með fótaburði.

Svala frá Neðra-Seli
Svala frá Neðra-Seli, brúnskjótt IS2006281100
F: Stáli frá Kjarri
FF: Galsi Sauðárkróki  FM: Jónína Hala
M: Kría frá Lækjamóti 1v
MF: Hervar Sauðárkróki  MM: Sokka Lækjamóti

Svala er lottóvinningur ársins. Eftir að Kría gamla (26v) hafði verið geld síðan 2003 kom þessi brúnskjótta hryssa undan Stála. Svala er afar hlaupaglöð, alltaf á ferðinni og brokkar eins og flest hin Kríubörnin nánast frá því hún steig upp úr karinu. Hún er afar hágeng og standreist.
 


Tíbrá frá Neðra-Seli
Tíbrá frá Neðra-Seli, jarpstjörnótt IS2006281120
F: Forseti frá Vorsabæ
FF: Hrafn Holtsmúla  FM: Litla-Jörp Vorsabæ
M: Tónlist frá Neðra-Seli
MF: Dynur Hvammi  MM: Tinna Ytra-Skörðugili

Tíbrá er hálslöng og fótlöng. Hún notar jöfnum höndum tölt og brokk með fallegum hreyfingum. Tónlist móðir hennar er úr okkar ræktun, undan Tinnu Kveiksdóttur sem var fyrsta hrossið sem Svanhildur ræktaði. Tónlist verður tamin í vetur (2007), en vegna þess að okkur finnst svo gaman að fá folöld þá létum við hana eiga eitt svona strax.

Þeyr frá Neðra-Seli
Þeyr frá Neðra-Seli, bleikálóttur vindóttur IS2006181110
F: Stáli frá Kjarri
FF: Galsi Sauðárkróki  FM: Jónína Hala
M: Þruma frá Sælukoti 1v
MF: Þrymur Geirshlíð  MM: Elding Stóru-Ásgeirsá

Bleikálótt- vindótti liturinn gerir Þey afar sérstakan á litinn. Auk þess er hann lappalangur og léttbyggður eins og faðirinn hann Stáli. Þeyr fer um stórum skrefum á öllum gangi og fótaburðurinn er í góðu lagi. Þeyr verður rúmur alhliða hestur.

© Úrvalshestar | Holtsmúli I  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM Svanhildur Hall: 659 2237 | GSM Magnús Lárusson: 659 2238 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is | English
Nýjar myndir
Spá frá Holtsmúla Ósk frá Holtsmúla
Blá frá Holtsmúla Auður frá Holtsmúla
Álfur frá Selfossi
Tamningar og þjálfun
Hnakkar til sölu