06.12.2011 | Fréttir

Drottningin sjálf kvödd með söknuði og þakklæti

Krían okkar var felld núna í haust á 32. aldursári.  Hún var standreist, feit og pattarlega fram á síðasta dag, og leið vel.  Hún var orðin svolítið stirð á gangi, og tennurnar farnar að vísa fram á við, en allar til staðar og sinntu sínu hlutverki.  Hervarsdóttirin Kría frá Lækjamóti var án efa glæsiskeppna og er búin að gefa okkur nokkur 1v hross, en mörg afkvæma hennar hafa því miður verið óheppin með meiðsl og eru því ósýnd eða einungis sýnd fyrir byggingu.  Við erum svo heppin að vera með 5 dætur hennar í ræktun, og eru þær að gefa okkur glæsihross.  Afkvæmi Kríu eru þessi:

1988 Kveikja frá Hólum undan Adam frá Meðalfelli.  Hryssa sem var seld lítið gerð.

1989:  Hryssa undan Gáska frá Hofsstöðum sem fórst

1990:  Kveikur frá Hólum.  Hestur sem fórst ásamt mörgum öðrum tryppum í Hólabyrðunni tveggja vetra gamall

1992:  Assa frá Hólum, Kolfinnsdóttir frá Kjarnholtum, hágeng klárhryssa með 1v fyrir byggingu en átti ekki góðan dag í dómi sökum meiðsla.  Gekk vel í fjórgangskeppni.

1993:  Spæta frá Hólum.  Hryssa undan Vafa frá Kýrholti.  Ræktunarhryssa sem slasaðist en fékk 8,27 fyrir byggingu og hefur gefið einn stóðhest með 8,32 í aðaleinkunn.

1994:  Kráka frá Hólum.  Glæsileg Orradóttir með 8,16 í aðaleinkunn klárhryssa.

1995:  Tjaldur frá Hólum.  1v Kolfinnssonur í Bandaríkjunum.

1996:  Svartbakur frá Hólum.  Hrafnssonur sem veiktist illa í hestapestinni 1998 og stækkaði ekkert eftir það.  Hefur gefið góð 1v hross.

1998:  Fugl frá Gauksmýri.  Svartssonur frá Unalæk, reiðhestur.

1999:  Erna frá Neðra-Seli, Hamsdóttir frá Laugarvatni sem er ræktunarhryssa í Holtsmúla

2001:  Gammur frá Neðra-Seli.  1v stóðhestur undan Víkingi frá Voðmúlastöðum.  Staðsettur í Finnlandi.

2003:  Karri frá Neðra-Seli.  Reiðhestur undan Forseta frá Vorsabæ, fékk 1v fyrir byggingu 4v gamall.

2006:  Svala frá Neðra-Seli, Stáladóttir frá Kjarri sem er nú fylfull með sitt þriðja folald, vonandi komum við því nú samt í verk að temja hana því þetta er mikil efnishryssa!

Magnús Lárusson tamdi, þjálfaði og sýndi Kríu og átti með henni farsælan feril í fjórgangsgreinum.  Margir muna eftir þessari hágengu, háreistu hryssu sem fékk 9,0 fyrir tölt árið 1987 þegar þeirri tölu var nú ekki kastað nema gott tilefni þætti til.  Kría hefur fengið fallegan stað til að hvíla á í trjáreit hér í Holtsmúla, og var vinur hennar hann Alí felldur með henni.  Alí gaf okkur ekki síður mikið þó að það væri á allt annan hátt.  Seinna verður skrifaður smá pistill um hann enda af nógu að taka.


Til Baka