Getum bætt við okkur hrossum í tamningu
23. nóvember, 2015
Í Holstmúla er verið að frumtemja hesta á fullu. Við erum þó með nægan mannskap og frábæra aðstöðu, og getum því bætt við okkur nokkrum hrossum. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, og höfum staðgóða þekkingu á hegðun hestsins og námsatferli. Áratugareynsla hjálpar okkur líka við að hjálpa hverjum hesti við að ná sem mestum framförum. Endilega pantið pláss með því að hringja í Magnús í síma 659 2238 eða senda tölvupóst á urvalshestar@urvalshestar.is