19.02.2012 | Fréttir
Til Baka
Jón Þorberg Steindórsson eða Beggi mættur til starfa

Það sannast stundum all hressilega máltækin beint fyrir framan nefið á manni, og það gerðist hjá okkur þegar við vorum að leita að tamningamanni til starfa. Eftir viðamikla leit út um allt, fréttum við loksins að nágranni okkar frá Minni-Völlum, hann Beggi væri á lausu til starfa. Eftir að hafa því leitað langt yfir skammt, réðum við Begga í hvelli og síðan mætir hann hér daglega og ríður út á fullu. Útreiðar ganga mjög vel og á myndinni er hann á Vismu frá Garði, smart Þristsdóttur sem er að verða tilbúin í sölu, mjög hágeng og flott hryssa. Tilbúin á brautina í vor. Beggi fer vel að tryppunum og söluhrossin þróast vel hjá honum enda þaulvanur maður á ferð. Við bjóðum hann velkominn til starfa.
Til Baka