31.12.2011 | Fréttir
Til Baka
Óskum hestamönnum gleðilegs árs 2012

Það er spennandi ár framundan hjá öllum hestamönnum, þar sem glæsilegt Landsmót mun vafalítið standa upp úr. Fjöldi efnilegra hrossa eru komin í tamningu og það er strax orðið spennandi að bíða eftir afrakstrinum í vor. Allar tamningastöðvar eru fullar af efnilegum tryppum. En það er margt annað í hestamennskunni sem veitir tilhlökkun auk mótanna, við eigum von á yfir 30 folöldum en það er einn allra skemmtilegasti tími ársins finnst okkur þegar þau fara að koma í heiminn.
Enn og aftur, við óskum öllum farsældar á komandi ári og hlökkum til mikils hestaárs.
Til Baka