01.11.2011 | Fréttir
Til Baka
Stóðhestur úr okkar ræktun fær góðan byggingadóm í Þýskalandi

Erill frá Neðra-Seli, sonur Ernu frá Neðra-Seli og Sæs frá Bakkakoti gerði það gott á kynbótasýningu í Þýskalandi núna í ágúst með því að fá 8,26 fyrir byggingu. Þessi vel ættaði og litfagri stóðhestur er aðeins fjögurra vetra og á framtíðina fyrir sér. Við óskum núverandi eigendum Erils, Gestut Heesberg innilega til hamingju með hestinn, en þau keyptu hann af okkur sem folald.
Til Baka