21.02.2012 | Fréttir
Til Baka
Tamið á fullu

Tamningarnar ganga mjög vel hér á bæ og eru þrælskemmtilegar því húsið er fullt af efnilegum hrossum. Nokkrir stóðhestar eru inni á fjórða vetur, flestir undan Aroni og einn undan Krumma frá Blesastöðum. Tveir Stálasynir eru einnig inni á sjötta vetur en annar þeirra, Þeyr fór í góðan dóm í fyrra. Margara efnilegar hryssur eru í tamningu, og eru feðurnir Aron, Glymur frá Skeljabrekku, Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, Forseti frá Vorsabæ, Glymur frá Árgerði og fleiri.
Á myndinni er Magnús bóndi að frumtemja einn efnilega Aronsson á fjórða vetur, undan Öskju frá Þúfu. Þessi foli heitir Akkur frá Holtsmúla og á framtíðina fyrir sér höldum við.
Til Baka