27.01.2012 | Fréttir

Úrvalshesta bjóða upp á frábæra stóðhesta til undaneldis í sumar

Ferilskrá Kappa frá Kommu er glæsileg, og ber þar hæst að vera hæst dæmdi fjögurra vetra stóðhestur fyrr og síðar!  Kappi fékk 8,42 í þeirri sýningu og þar af 9 eða 9,5 fyrir alla þætti hæfileika nema fet og skeið.  Byggingin er stórglæsileg enda hesturinn með 9 fyrir háls og bak og lend, og 9,5 fyrir samræmi.  Sex vetra gamall fær Kappi 8,51 fyrir bæði byggingu og hæfileika, þar af 9,5 fyrir tölt, stökk, fegurð í reið og samræmi.  Hann er einnig með 9 fyrir brokk, vilja og geðslag, hægt stökk, háls og bak og lend.

Gullfallegur hestur sem verður staðsettur hjá Úrvalshestum í sumar.  Allar nánari upplýsingar hjá okkur í síma 659 2237 og á urvalshestar@urvalshestar.is

 


Til Baka