Rauðhetta frá Kálfhóli 2

2006287842
Rauðskjótt

Verð: 550.000 kr.

Hryssa til sölu með úrvalsgott tölt. Vel reiðfær og efnileg. Búin að eiga eitt folald. Rauðhetta er ekki fylfull.

Rauðhetta er stór og falleg hryssa, og rúllaði strax í tamningu á tölti og brokki.  Hún er ca 3 mánaða tamin, en er ekki á járnum þar sem að það gengur enn undir henni folald.  Hægt er að skoða folaldið hér, en það er gullfalleg skjótt hryssa.  Rauðhetta sýnir strax góðan fótaburð og mikla mýkt á gangi.  Það á eftir að setja hana í höfuðburð en hún er létt í beisli, auðveld í stjórnun og orðin vel reiðfær á fet, tölti, brokki og stökki.  Segja má að nú hefjist skemmtilega vinnan, sem felst í að halda áfram með vel frumtamda hryssu.  Það eru töluverðar líkur á því að þessi hryssa eignist einungis skjótt afkvæmi þar sem bæði faðir hennar og móðir eru skjótt, og hennar fyrsta afkvæmi var skjótt.  Efnishryssa á ferð fyrir þá sem vilja kaupa gott efni á sanngjörnu verði.

Til baka

Ættartré
Forseti
Vorsabæ
Mímir
Selfossi
Busla
Skálholti
Fluga
Skálholti
Rauðhetta frá Kálfhóli 2