Klettur frá Kaldaðarnesi

IS2008182698
Gráskjóttur

Verð: 400.000 kr.

Klettur er ungur hestur af frábærum ættum sem er spennandi efni í reið- og / eða keppnishest. Stór og fallegur, sýnir tölt og brokk, eðal geðslag.

Klettur er undan 1v hryssunni Spá frá Staðartungu, en hún er sammæðra stóðhestinum og gæðingnum Fróða frá Staðartungu.  Það stendur því frábærlega að þessum hesti hvar sem á er litið.  Klettur er rúmlega bandvanur, það er búið að stíga á bak og er verið að kenna honum undirstöðuatriðin í að verða reiðhestur.  Klettur velur brokk, en töltið er hreint og laflaust.  Fótaburður er góður og skrefið mikið, þetta er afar efnilegur hestur.

Tilvalið efni í frábæran hest til að eiga við í vetur. 

Til baka

Ættartré
Gustur
Hóli
Dóttla
Hvammi
Þorri
Þúfu
Vænting (Blíða)
Ási
Klettur
Hvammi
Spá
Staðartungu
Klettur frá Kaldaðarnesi