Ísold frá Ragnheiðarstöðum
IS2006282570
Moldótt
Toppættuð alhliða hryssa, ósýnd ennþá. Fylfull en verður tekin í áframhaldandi tamningu veturinn 2012.
Ísold er háættuð hryssa sem við keyptum sem framtíðar ræktunarhryssu. Hún hefur allt sem þarf, er komin af framúrskarandi hrossum, er falleg, hreingeng og rúm og liturinn náttúrulega bara til að toppa allt saman. Hún var tamin töluvert á fjórða vetur en eins og með svo mörg önnur hross þetta árið setti hestaflensan algert strik yfir allt sýningarhald. Ísold var þó orðin fylfull og því ekkert að gera annað en að taka eitt ár í að koma með folald. Svo verður þessi hryssa tekin í áframhaldandi tamningu, og nær vonandi að sýna á brautinni hvað í henni býr.

Ættartré
Orri
Þúfu
Þúfu
Gígja
Auðsholts hjáleigu
Auðsholts hjáleigu
Kolfinnur
Kjarnholtum
Kjarnholtum
Rjúpa
Steðja
Steðja
Gígjar
Auðsholtshjáleigu
Auðsholtshjáleigu
Ísbjörg
Ólafsvík
Ólafsvík
Ísold frá Ragnheiðarstöðum