Námskeið
Þau námskeið sem eru framundan hjá Úrvalshestum eru þessi:
Laugardagur 11. febrúar 2012: Skeið og þjálfun skeiðhesta.
Bókleg og verkleg kennsla þar sem farið verður í uppbyggingu skeiðhestsins og / eða þjálfun skeiðs hjá alhliða hestum. Gangtegundin skeið er skoðuð í kjölinn í fyrirlestrum og video. Verklegi þátturinn snýst um það að nemendur eru æfðir í niðurtöku, skeiðreið og niðurhægingu.
Nemendur koma með eigin hesta, hugsanlega hægt að fá lánaðan hest. Hesturinn þarf að eiga þokkalega auðvelt með að skeiða, en þarf ekki að vera í toppformi.
Hámarksfjöldi þátttakenda 12.
Námskeiðið hefst klukkan 10:00 og lýkur klukkan 16:00
Verð 10.000 krónur.
Kennari: Magnús Lárusson
Skráning hér: urvalshestar@urvalshestar.is
Námskeið fyrir hópa
Úrvalshestar bjóða upp á fjölbreytt námskeið, yfirleitt í formi helgarnámskeiða eða reglubundinnar kennslu til lengri tíma. Tímasetningar og tímalengd námskeiða er samkomulag milli viðkomandi kennara hjá Úrvalshestum og skipuleggjenda námskeiðsins.
Viðfangsefni námskeiða geta verið hvað sem er tengt hestum og hestamennsku, allt eftir því hvað viðskiptavinurinn vill læra, en hér eru nokkur dæmi um vinsæl námskeið:
- Meðhöndlun og mat á unghrossum
- Námskeið um kynbótadóma, bygging og / eða hæfileikar
- Almenn reiðnámskeið, áhersla á ásetu og stjórnun
- Töltnámskeið
- Skeiðnámskeið
- Fimiæfinganámskeið, uppbygging reiðhestsins fyrir allt hitt
- Byrjendanámskeið
- Barna – og unglinganámskeið
- Frumtamninganámskeið
Kennarar eru Magnús Lárusson og / eða Svanhildur Hall. Þau hafa bæði áralanga menntun og reynslu í kennslu í reiðmennsku og hrossarækt.
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á einhverju af þessu eða vilt hanna þitt eigið námskeið með okkur. Við ferðumst um allt land til að kenna. Veljum saman hentugar tímasetningar og gerum alvöru úr þessu.