Verð á fóðrun hrossa
![]() |
| Úðrað í sig |
![]() |
| Heyinu velt út til að allir komist að |
![]() |
| Gott að lúlla í heyinu |
Úrvalshestar bjóða upp á fóðrun hrossa. Við leggjum metnað okkar í að hrossunum líði vel, hafi nóg að bíta og brenna og séu hæfilega mörg saman í passlega stórum beitarhólfum. Verð er mismunandi eftir því hvort um stóðhesta, fylfullar hryssur eða geldhross er að ræða, og einnig eftir því hversu lengi hrossin dvelja. Heils árs fóðrun skal greiða fyrirfram, hálft ár í senn. Hross sem eru hér á mánaðargjaldi eru ormahreinsuð reglulega haust og vor (og oftar ef þurfa þykir), og ber eigandi kostnað af því. Úrvalshestar geta farið fram á tveggja daga fyrirvara til að smala hrossum til afhendingar. Öll verð eru gefin upp fyrir utan virðisaukaskatt.
Fóðrun á fylfullum hryssum
| Heils árs fóðrun | 100.000 / ári + VSK |
| Innifalið: Beit, heygjöf og steinefnagjöf eftir þörfum, frjáls aðgangur að fersku vatni og salti. Sprautað árlega gegn lús og ormum, ormalyfsgjöf að auki í munn eftir þörfum. Reglubundið eftirlit allan ársins hring og sérstakt aukaeftirlit um það leyti sem hryssan kastar. | |
Fóðrun á geldhrossum og tryppum eldri en eins vetra
| Heils árs fóðrun | 90.000 / ári + VSK |
| Innifalið: Beit, heygjöf og steinefnagjöf eftir þörfum, frjáls aðgangur að fersku vatni og salti. Sprautað árlega gegn lús og ormum, ormalyfsgjöf að auki í munn eftir þörfum. Reglubundið eftirlit. | |
|
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 1. des - 1. júní |
12.000 / mán + VSK |
| Innifalið: Heygjöf og beitiland eftir þörfum, frjáls aðangur að fersku vatni og salti. Reglubundið eftirlit. | |
|
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 1. júní - 30. nóv |
5.000 / mán + VSK |
| Innifalið: Beit, ferskt vatn og salt eftir þörfum. Reglubundið eftirlit. | |
Fóðrun á stóðhestum 2v og eldri
| Heils árs fóðrun | 150.000 / ári + VSK |
|
Innifalið: Beit, heygjöf og steinefnagjöf eftir þörfum, frjáls aðgangur að fersku vatni og salti. Sprautað árlega gegn lús og ormum, ormalyfsgjöf að auki í munn tvisvar á ári. Reglubundið eftirlit. |
|
|
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 1. nóv - 15. júní |
16.000 / mán + VSK |
|
Innifalið: Heygjöf og beitiland eftir þörfum, frjáls aðangur að fersku vatni og salti. Reglubundið eftirlit. |
|
|
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 15. júní - 31. okt |
12.000 / mán + VSK |
|
Innifalið: Beit, ferskt vatn og salt eftir þörfum. Reglubundið eftirlit. |
|
Fóðrun á stóðhestum veturgömlum til tveggja vetra
| Heils árs fóðrun | 140.000 + VSK |
|
Innifalið: Beit, heygjöf og steinefnagjöf eftir þörfum, frjáls aðgangur að vatni og salti. Sprautað árlega gegn lús og ormum, ormalyfsgjöf að auki í munn þrisvar á ári. Reglubundið eftirlit. |
|
Athugið að varðandi fóðrun allra hrossa er ekki innifalinn sá dýralækniskostnaður sem ekki telst vera þáttur í reglubundinni umhirðu hrossins, svo sem vegna slysa eða veikinda. Eigandi ber allan dýralæknakostnað sem kann að verða af þeim orsökum. Úrvalshestar áskilja sér rétt til að breyta þessari verðskrá fyrirvaralaust vegna breytinga á verði aðfanga.
_200_150.jpg)
_200_150.jpg)
_200_150.jpg)