Söluhross dagsins í dag, fimmtudag 22. sept
22. september, 2016
Aþena frá Neðra-Seli er hross dagsins sem er ný í sölu. Hún er orðin 10 vetra, lífsreynt reiðhross sem hefur að auki átt fjögur folöld. Hún vill helst tölta og er afar auðveld í allri stjórnun og meðferð. Frábært fjölskylduhross með ágætan fótaburð. Endilega skoðið allt um hana Aþenu hér.