Arndís frá Holtsmúla 1

IS2018281118 | Rauðnösótt

Gullfalleg hryssa með sérlega fallegan háls, langan grannan og hátt settan á háum herðum. Hreyfinarnar eru stórar og hún fer um á tölti og brokki.

Löng skref og mikil mýkt einkenna hreyfingar hennar Arndísar, þetta er afar lofandi hryssa.  Hún er mjög þjál í viðmóti, og orðin bandvön sem var auðveld og skemmtileg vinna.

Selt


Myndasafn

Ættartré

  • Sólon Skáney
  • Vök Skálakoti
  • Kraflar Miðsitju
  • Skeifa Þúfu
Arndís Holtsmúla 1