Gljá frá Holtsmúla 1

IS2012281115 | Rauðskjótt, blesótt

Gljá er stór og myndarleg, töltgeng og þæg hryssa. Ekta fjölskylduhross og frábærlega ættuð undan 1v foreldrum.

Gljá er afar meðfærileg og auðveld í reið.  Hún er létt í beisli, auðveld að stjórna og gefur góða tilfinningu sem traust reiðhross.   Hún velur oftast tölt en brokkar einnig mjúkt og er því þægileg ásetu.  Það er líklega töluvert skeið til staðar en hefur ekki verið þjálfað.

Gljá er spök og frábær í allri umgengni, hún á mikið inni á gangtegundum.

Selt


Myndasafn

Myndband

Ættartré

  • Orri Þúfu
  • Álfadís Selfossi
  • Sörli Stykkishólmi
  • Lísa Skíðbakka
Gljá Holtsmúla 1