Páskalilja frá Þorlákshöfn

IS2000287199 | Jörp

Bygging: 7,99
Hæfileikar: 8,14
Aðaleinkunn: 8,08

1 Verðlaun

Páskalilja er mjög stór og myndarleg alhliða hryssa, rúm og hágeng.

Páskalilja fellur afar vel að okkar ræktunarmarkmiðum að mörgu leyti og var því keypt til að stækka okkar hrossarækt. Hún er óvenju stór, eða 145 cm á stöng, og feiknarlega myndarleg á velli. Lena Zielinski sýndi hana í fyrstu verðlaun strax fimm vetra gamla, og þá fékk hún m.a. 9,0 fyrir hægt tölt, sem er frábært hjá svo ungu, alhliða hrossi. Lena hælir Páskalilju, segir hana hafa skemmtilegt skap og vera mjög rúma sem styður það sem tölurnar segja okkur. Lena segir hana líka eiga heilmikið inni, en Páskalilja verður að öllum líkindum ekki sýnd aftur, við erum svo gráðug í folöld undan svona góðum hryssum!

Í eigu Úrvalshesta


Myndasafn

Kynbótadómur

Sköpulag
Höfuð 7,0
Háls/herðar/bógar 8,5
Bak og lend 8,0
Samræmi 8,5
Fótagerð 7,0
Réttleiki 7,5
Hófar 8,5
Prúðleiki 7,0
Hæfileikar
Tölt 8,5
Brokk 7,5
Skeið 7,5
Stökk 8,0
Vilji og geðslag 8,5
Fegurð í reið 8,5
Fet 6,5
Hægt tölt 9,0
Hægt stökk 7,5
Sköpulag 7,99
Hæfileikar 8,14

Aðaleinkunn 8,08

Ættartré

  • Orri Þúfu
  • Hildur Garðabæ
  • Gustur Sauðárkróki
  • Sunna Svignaskarði
  • Garpur Auðholtshjáleigu
  • Tinna Svignaskarði
Páskalilja Þorlákshöfn