Rák frá Guðnastöðum
IS2010284518 | Brúnskjótt
Rák er lipur hryssa með fallegar hreyfingar bæði á tölti og brokki.
Hún er orðin vel bandvön og sýnir sig að vera afskaplega meðfærileg og fljót að læra. Hálsinn er hátt settur og mjúkur, meðallangur. Hún er einstaklega falleg yfir bak og lend, vöðvamikil og sterkleg án þess að vera þungbyggð. Fæturnir ágætlega langir og útlitið því gott. Það er mikil mýkt í hreyfingunum, og hún er mjög mjúkgeng. Gæti orðið alveg frábært reiðhross sem nýtist einnig í léttari keppni og ekki síður í ræktun. Hún er undan hesti sem er í rétt tæpum fyrstu verðlaunum.
Í eigu Úrvalshesta
Myndband
Ættartré
- Aron Strandarhöfði
- Rauðhetta Kjarnholtum
- Glæsir Guðnastöðum
- Rák Þúfu
- Úlfur Ósabakka
- Rakel Guðnastöðum
Rák
Guðnastöðum