Sara frá Síðu

IS2001255263 | Dökk rauð

Vel ættuð hryssa fylfull við frábærum 1v hesti, þey frá Holtsmúla, til sölu. Tamin, gæf og auðveld í allri meðhöndlun. Kastar 2013.

Sara er falleg Roðadóttir sem hefur gefið okkur tvö falleg afkvæmi nú þegar.  Hún er nú fylfull við Þey frá Holtsmúla, vindóttum hesti með 8,39 í aðaleinkunn.  Sara sýnir brokk og tölt, og er tamin og þæg.  Hún er afar auðsveip og auðveld í allri meðhöndlun og spök.  Hún er með rúmlega meðalfax, afar sterklegt og fallega lagað bak og lend, og vel byggð til fótanna.  Það stendur gott að henni og þetta er því alveg tilvalin ræktunarhryssa.  Myndbandið var tekið af Söru með folaldinu sínu henni Sædísi í október 2011, en þarna er Sara afskaplega feit og fylfull.

Fórst


Myndband

Ættartré

  • Orri Þúfu
  • Litla-Þruma Múla
  • Þytur Svaðastöðum
  • Fluga Sauðárkróki
  • Roði Múla
  • Tinna Sauðárkróki
Sara Síðu