Afleiðingar óveðurs
13. apríl, 2020
Fyrir nokkrum dögum var einn versti stormur sem við höfum nokkurn tímann lent í hérna í Holtsmúla. Harður vindur, snjókoma og skafrenningur lék okkur grátt heila helgi, og við höfum aldrei áður fengið jafn mikinn snjó inn í hesthúsið. Eitt örsmátt gat varð til þess að heilu skaflarnir enduðu innandyra, og gamalt bárujárnshús eins og gamla reiðskemman okkar var því ekki meira skjól en svo, að við urðum að hreinsa snjóinn út með traktor! Eins og myndirnar sýna var líka mikill snjór upp á hááloftinu, og varð því að handmoka honum af loftinu. Allt tók þetta marga klukkutíma fyrir liðið í hesthúsinu, en sem betur fer kom Þröstur á dráttarvélinni sinni og hjálpaði til.
Heimasæturnar bökuðu svo vöfflur þegar aðgerðinni var lokið, og ég held að óhætt sé að segja að allir voru verulega fegnir.