Heyskap lokið

26. júlí, 2020

Einmuna veðurblíða bæði fyrir grasvöxt og svo núna undanfarið fyrir heyskap hefur gert það að verkum að úrvals hey hafa náðst og mikið af þeim.  Vorið og snemmsumarið var sólríkt með nægri vætu, þannig að grasið óx hratt og vel, og nú hafa verið frábærir þurrkar til að verka heyið.  Heyskap er lokið í Holtsmúla og nóg til að topp heyi fyrir mörg hross næsta vetur.

Það eru stórar vélar sem tækla heyskapinn þessa dagana
Það eru stórar vélar sem tækla heyskapinn þessa dagana