Lífið á hrossaræktarbúgarði á COVID tímum
12. apríl, 2021
Lífið í Holtsmúla hefur verið merkilega lítið öðruvísi vegna veirunnar sem nú tröllríður öllu. Við þjálfum hross alla daga og salan hefur sjaldan verið líflegri. Auðvitað er kennsla og dómstörf og ýmislegt í lágmarki, en þá er eins og annað gefi í eins og salan, og eins og við erum gjörn á að segja, þetta reddast allt saman.
Sölusíðan er tóm, öll hross seld eða ekki til nýlegar myndir. Við bíðum eftir að unghrossin gangi úr og tökum þá góða rispu í myndatökum.
Okkar nýja hesthús hefur heldur betur staðið undir væntingum og hefur verið frábært að vinna í því í vetur með beinan aðgang inn í reiðhöllina. Það hefur því enginn dagur dottið út í þjálfun hrossanna vegna veðurs.