Merkisdagur í Holtsmúlanum

2. apríl, 2020

Við vorum að skrifa undir samning við verktakann sem mun reisa hjá okkur nýja hesthúsið.   Þessa byggingu höfum við verið að hanna og undirbúa mánuðum saman, og nú fer að nálgast dagurinn þegar við byrjum á framkvæmdum.

Þessi nýja bygging mun tengja saman gamla hesthúsið okkar við reiðhöll sem nú stendur sér og við byggðum árið 2013.   Bæði sú reiðhöll, og nýja hesthúsið eru frá Límtré. 

Að sjálfsögðu var tekist í "hendur" til að innsigla samninginn eins og háttur er á þessum tímum og myndin sýnir.  Við vonum að veiran setji ekki strik í þessar áætlanir okkar og stefnum bara ótrauð áfram.   

Merkisdagur í Holtsmúlanum