Rauðskeggur frá Kjarnholtum verður í Holtsmúla í sumar að sinna hryssum
8. maí, 2020
Við erum hæstánægð að geta kynnt stóðhestinn sem við verðum með í sumar, en það er enginn annar en gæðingurinn gullfallegi, Rauðskeggur frá Kjarnholtum. Rauðskeggur er stór og mjög hátt dæmdur bæði fyrir byggingu og hæfileika, enda með 8,76 í aðaleinkunn. Rauðskeggur verður mættur í Holtsmúla snemma í júní og byrjar strax að sinna hryssum. Ekki missa af þessu tækifæri að halda undir þennan eðalhest. Hafði samband til að fá nánari upplýsingar. Alltaf hægt að bæta inn á hestinn hryssum. Hér má finna allar upplýsingar um Rauðskegg og Þey frá Holtsmúla 1, en einnig er hægt að koma með hryssur undir hann.