Kveikja frá Holtsmúla 1

IS2015281103 | Rauð

Það hefur aldrei verið farið í felur með það að Kráka frá Hólum er uppáhaldshryssan hér á bæ. Það ríkti því mikil gleði þegar Kveikja leit dagsins ljós undan snillingnum og heimsmethafanum Konsert frá Hofi.

Kveikja er fasmikil og harðákveðin vel stór hryssa og hefur sýnt allan gang.  Hún fer þó mest um á skrefamiklu brokki og framgangan er flott.   Byggingin er þannig að hryssan er háfætt og hálsinn langur og hringaður með klipna kverk.  Mjög spennandi hryssa í hvaða hlutverk sem er.

Selt


Myndasafn

Myndband

Ættartré

  • Ómur Kvistum
  • Kantata Hofi
Kveikja Holtsmúla 1