Askur frá Neðra-Seli

IS2007181101 | Brúnn

Myndarlegur klárhestur með flottar hreyfingar. Efni í frábæran sporthest í fjórgangsgreinum.

Það er bara einn galli við hann Ask og hann er sá að hann er ekki hryssa! Að öðru leyti er hann frábær, háfættur og háreistur, og fer um á brokki með miklum fótaburði. Askur stefnir í að verða monthani því hann virðist hafa gaman af því að brokka um og láta hnén vaða út í loftið, verulega spennandi fjórgangsefni.

Selt


Ættartré

  • Óður Brún
  • Yrsa Skjálg
Askur Neðra-Seli