Síða frá Holtsmúla 1

IS2011281100 | Brúnskjótt

Smart týpa er hún Síða, sem veður um á hágengu brokki og sver sig þar með í móðurættina.

Síða er standreist og kvik í hreyfingum.  Klárgangurinn er fyrirferðamestur, og hún var spör á töltið þó að örfá spor sæjust á fyrstu dögum hennar lífs.  Þetta hefur nú ansi oft skeð hjá ættingjum hennar af Kríukyninu okkar, og töltið ekki klikkað þegar það svo kemur.  Við erum spennt fyrir þessari hryssu fyrir hönd vinkonu okkar Barböru Frische sem var svo forsjál að kaupa hana meðan hún var enn í móðurkviði!

Selt


Myndasafn

Ættartré

  • Orri Þúfu
  • Álfadís Selfossi
Síða Holtsmúla 1