Tökum unga stóðhesta í uppeldi

4. maí, 2020

Úrvalshestar bjóða upp á uppeldi fyrir ógelta ungfola á aldreinum 1 - 3 vetra.   Áhersla er lögð á að hestarnir séu á svipuðum aldri sem eru saman í girðingu, og ekki of margir.   Einnig eru þeir fjarri öðrum hrossum, og í friði frá skarkala hversdagsins.  Sanngjarnt verð.  Athugið að best er að koma hestunum inn í girðinguna núna í maí, því svo viljum við hafa sem mestan frið hjá þeim í sumar.

Verð per mánuð er eftirfarandi með VSK:

Folar fæddir 2019:  17.000 per mánuð

Folar fæddir 2018:  18.000 per mánuð

Folar fæddir 2017.  19.000 per mánuð

Sællegir graðhestar í uppvexti
Sællegir graðhestar í uppvexti