Ljúfur frá Guðnastöðum

IS2009184518 | Leirljós blesóttur

Sjö vetra gæðablóð til sölu. Ljúfur ber nafn með rentu, honum geta nánast allir riðið og hann lætur mjög auðveldlega að allri stjórn. Hann er ennfremur frábær í allri umgengni og spakur í haga.

Við teljum myndir og video tala sínu máli hér, en það má samt um hann Ljúf segja að hann er mjög stutt kominn í námi sínu í að  tölta, og velur mjúkt brokk.  Ljúfur er umhugað um að gera knapa sínum til geðs, og fer af stað við létta ábendingu, en er mjög auðveldur að auki í stöðvun og allri stjórnun.  Myndbandið sýnir þetta vel, en hún Edda sem er 10 ára var fengin í að prófa hann í fyrsta skipti til að sýna okkur hina ýmsu kosti Ljúfs.

Selt


Myndasafn

Myndband

Ættartré

  • Ljósálfur Dalsseli
  • Óskráð
Ljúfur Guðnastöðum