Narri frá Vestri-Leirárgörðum

IS2006135469 | Jarpur

Bygging: 8,39
Hæfileikar: 8,92
Aðaleinkunn: 8,71

1 Verðlaun

Það gustar af þessum hnarreista, jafnvíga, alhliða gæðingi enda var hann hæst dæmdi sjö vetra hestur á Íslandi árið 2013. Hann er einnig gullfallegur og aðaleinkunnin segir allt sem segja þarf um þennan frábæra hest.

Narri er jafnvígur alhliða hestur með nánast 9 fyrir allt.  Hann hefur nú þegar gert það gott í íþróttakeppni, og var aðeins sex vetra gamall í A-úrslitum í fimmgangi á Íslandsmóti í hestaíþróttum.  Gangtegundirnar eru hreinar og fótaburðurinn mikill sem og rýmdin og krafturinn.  Byggingin einkennist af því að hesturinn er mikið reistur og léttbyggður með mjög langa fætur.  Þetta eykur allt á hans glæsileika, en tölurnar tala líka sínu máli.  Narri er með 122 í kynbótagildisspá (blup).

Narri verður í Holtsmúla að sinna hryssum frá 15. júlí og út tímabilið.

Verð á folatolli undir Narra er kr. 150.000 með VSK

Fylla þarf út sérstakan samning með hverri hryssu sem kemur í Holtsmúla og má annað hvort prenta hann út hér eða fylla út við komuna í Holtsmúla.  Einnig þurfa bæði hryssa og folald hennar að vera örmerkt áður en þau fara í girðinguna.  Við bjóðum upp á örmerkingu ef þarf.  Athugið að hryssan fer ekki undir hestinn nema að forráðamaður/ábyrgðarmaður hryssunnar sé búinn að skrifa undir.

Smellið hér til að prenta út  samning fyrir hryssu  undir Narra frá Vestri-Leirárgörðum


Myndband

Kynbótadómur

Sköpulag
Höfuð 8,5
Háls/herðar/bógar 8,5
Bak og lend 9,5
Samræmi 9,0
Fótagerð 8,0
Réttleiki 7,5
Hófar 8,0
Prúðleiki 8,0
Hæfileikar
Tölt 9,0
Brokk 9,0
Skeið 8,5
Stökk 9,0
Vilji og geðslag 9,0
Fegurð í reið 9,0
Fet 9,0
Hægt tölt 8,5
Hægt stökk 8,0
Sköpulag 8,39
Hæfileikar 8,92

Aðaleinkunn 8,71

Ættartré

  • Kolfinnur Kjarnholtum
  • Vænting Ketilsstöðum
  • Hersir Oddhóli
  • Brúða Vestri-Leirárgörðum
  • Natan Ketilsstöðum
  • Vár Vestri-Leirárgörðum
Narri Vestri-Leirárgörðum